Um Lækjarbrekku
Lækjarbrekka er sígildur veitingastaður staðsettur í hjarta Reykjavíkur.
Húsið á að baki stórbrotna sögu, enda eitt af elstu húsum borgarinnar og hefur hýst starfsemi Lækjarbrekku í yfir 20 ár.
Markmið Lækjarbrekku er að bjóða ávallt uppá ljúffengan mat úr fyrsta flokks hráefni ásamt fagmannlegri og alúðlegri þjónustu.
Þannig leitast Lækjarbrekka við að uppfylla þarfir sinna viðskiptavina og gera heimsókn þeirra ógleymanlega.
Lækjarbrekka býður upp á fjölbreyttan matseðil frá hádegi og fram á kvöld.
Alla daga vikunnar.
Í hádeginu
sérhæfir Lækjarbrekka sig í léttum og ferskum réttum eins og t.d. súpum, salati, fisk og kjúklingaréttum.
Síðdegis
tekur Lækjarbrekka á sig mynd kaffihúss og býður upp á gómsæta smárétti, samlokur, kaffi og kökur.
Á kvöldin
er fjölbreytnin í fyrirrúmi. Þá er boðið upp á allt frá forréttum og ávaxtaréttum, yfir í fyrsta flokks kjöt og fiskrétti. Eitthvað fyrir alla.
Lækjarbrekka býður einnig upp á tvo veislusali. Annar rúmar 45 gesti en hin rúmar allt að 90 gesti. Hentar við hvaða tilefni sem er.
Hvar erum við
Lækjarbrekka er í miðbæ Reykjavíkur á horni Bankastrætis og Lækjargötu.
Matseðlar eru í gildi á þeim tímum sem hér segir:
Hádegismatseðill 11:30-14:30
Kaffiseðill 14:30-17:30
A la Carte 11:30-23:00
Borðapantanir:
Borðapantanir eru í síma 551 4430.
Einnig er hægt að panta borð í tölvupósti, en þá með minnst 2ja daga fyrirvara.
Hópapantanir
bókanir í síma 665 0555, Hörður Sigurjónsson og hordur@foodco.is
